Terms of service

Afgreiðsla vöru
Pantanir eru venjulega afgreiddar næsta virka dag eftir að þær berast. Á annasömum tímum, svo sem við útsölur og sértilboð, getur afgreiðslutími verið lengri. Ef vara er ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og gefa upp áætlaðan afhendingartíma. Ef varan reynist uppseld áskilur Koalas sér rétt til að endurgreiða hana.

Viðskiptaskilmálar
Koalas áskilur sér rétt til að hætta við pöntun, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða annarra mistaka. Einnig getur Koalas hætt að bjóða tiltekna vöru fyrirvaralaust. Öll verð eru með virðisaukaskatti, en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Trúnaður og öryggi
Við tryggjum fyllsta trúnað með öllum upplýsingum sem viðskiptavinur veitir í tengslum við viðskipti. Slíkar upplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila nema lög krefjist þess.

Lög og varnarþing
Þessir skilmálar eru settir samkvæmt íslenskum lögum og skulu túlkaðir í samræmi við þau. Komi upp ágreiningur skal honum vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Sveppalingur ehf.
koalas@koalas.is
Kt: 450825-1310