Shipping policy
Afgreiðslutími Við afgreiðum pantanir eins fljótt og unnt er, yfirleitt innan 1–2 virkra daga frá pöntun. Venjulegur afhendingartími er 2–4 dagar, en á álagstímum getur hann lengst.
Póstsendingar Þegar pöntun hefur verið móttekin fær viðskiptavinur staðfestingu í tölvupósti. Þegar pöntunin er komin í vinnslu sendum við annan tölvupóst með sendingarnúmeri og upplýsingum um afhendingu. Ef varan er ekki til á lager munum við hafa samband og láta vita um áætlaðan afhendingartíma. Á annasömum tímum, til dæmis á útsöludögum eða í kringum hátíðir, getur afhending dregist.
Öll verð í netverslun innihalda 24% virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Við notum póstþjónustu Dropp, sem býður afhendingu á 92 stöðum um land allt. Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp gilda fyrir allar sendingar sem þeir annast.
Sendingarkostnaður Kaupandi greiðir sendingarkostnað nema annað sé tekið fram.
Afhendingarstaðir Dropp Ef þú velur að sækja pöntun á afhendingarstað Dropp verður hún send á þann stað sem þú valdir við pöntun. SMS er sent þegar pakkinn er tilbúinn til afhendingar.
Heimsending Veljir þú heimsendingu er varan afhent heim að dyrum. Þjónustan er í boði á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturhorninu (Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær og Þorlákshöfn). Afhending fer fram á milli kl. 18:00 og 22:00. Kl. 17:15 fær viðtakandi SMS með nánari afhendingartíma og getur fylgst með bílstjóranum í rauntíma.
Íslandspóstur
Allar pantanir innanlands eru sendar með Íslandspósti innan 1–2 virkra daga frá greiðslu.
Þegar pöntun hefur verið send frá Koalas tekur Íslandspóstur yfir afhendingu. Afhendingartími er yfirleitt 3–7 virkir dagar.
Ábyrgðarsendingar eru afhentar á næsta pósthús eða póstbox viðskiptavinar. Ef pöntun er yfir 7.000 kr. fellur sendingargjaldið niður.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að póstkassi eða póstlúga sé rétt merkt. Ef merkingar vantar eða eru ófullnægjandi getur Íslandspóstur sent pakkann til baka og ber viðskiptavinur þá kostnað af endursendingu. Við mælum einnig með að nöfn og heimilisföng séu skráð eins nákvæmlega og hægt er við pöntun.
Sveppalingur ehf.
koalas@koalas.is
kt. 450825-1310