Refund policy
Vörur má skila ef þær hafa ekki verið notaðar, eru í óaðfinnanlegu ástandi og með öllum upprunalegum merkimiðum. Ef vara er í innsigluðum umbúðum þarf innsiglið að vera órofið. Til að hægt sé að taka við skilum þarf að fylgja með sölureikningur eða gjafamiði úr verslun, sem staðfestir kaupin.
Skil á vörum miðast við upphaflegt kaupverð, nema varan hafi verið keypt á útsölu eða í sértilboði – þá gildir verðið sem var við kaupin. Útsöluvörur er ekki hægt að skila, en hægt er að skipta þeim í aðrar útsöluvörur á meðan útsala stendur yfir.
Skipti á vörum eru í boði í verslun, til dæmis ef óskað er eftir öðrum lit, stærð eða annarri tegund. Einnig er hægt að fá inneignarnótu sem gildir í 4 ár frá útgáfudegi.
Viðskiptavinir sem versla í netverslun hafa rétt á að fá kaupverðið endurgreitt innan 14 daga frá móttöku vöru. Til þess þarf að hafa samband í síma eða með tölvupósti (sjá samskiptaupplýsingar neðst á síðunni). Athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 4 virka daga frá því að varan berst aftur til okkar. Kostnaður við að skila vöru er á ábyrgð viðskiptavinar.
Við endursendingu vinsamlegast látið eftirfarandi fylgja með:
Nafn
Símanúmer
Heimilisfang og póstnúmer
Bankaupplýsingar ásamt kennitölu
Gölluð vara
Viðskiptavinir hafa allt að tvö ár frá kaupdegi til að tilkynna galla á vöru, í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003. Að þeim tíma liðnum fellur rétturinn niður.
Staðfestist galli á vöru bjóðum við annaðhvort viðgerð, nýja vöru í staðinn eða endurgreiðslu – fer það eftir því hvað hentar best í hverju tilviki. Allur sendingarkostnaður sem tengist málinu er greiddur af okkur.
Ef þú telur að varan sem þú keyptir sé gölluð, vinsamlegast sendu tölvupóst á hjalp@koalas.is með fyrirsögnina „Gölluð vara“. Við tökum málið til skoðunar og leysum úr því eins fljótt og unnt er.
Sveppalingur ehf.
koalas@koalas.is
Kt: 450825-1310